Þetta frönskunámskeið er ætlað börnum frá 12 til 14 ára aldurs sem hafa tekið námskeið fyrir burjendur (A1.1). Þau hafa þegar grunn í frönsku (hafið samband við okkur til að fá frönskukunnáttu barns metið og til að fá ráðgjöf). Þetta stig er fyrir byrjendur í frönsku (A1.2).

Nemendurnir halda áfram að læra frönsku eftir A1.1. Þeir byrja að uppgötva frönsku sem skrifmál á meðan þeir bæta frönsku sína í talmáli og læra meiri orðaforða. Þeir byrja líka að geta talað á frönsku um sig sjálf, fjölskyldu þeirra, vini þeirra og um daglegt líf.

Þetta námskeið býður nemendunum upp á mörg þroskandi og skemmtileg verkefni sem efla námið í frönsku með því að skrifa, að lesa, að tala og að skilja talmál.

Að loknu námskeiðinu stendur börnum til boða að taka DELF Junior A1 prófið.

Ein klukkustund í hverri viku (34 vikur).

Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 6 nemendur.

Frestun og forföll

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annanna.

Styrkir

Munið að athuga með námsskeiðsstyrki hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi.

Skóladagatal

  • DAGSETNING: frá 8. september 2020 til 1. júní 2021
  • TÍMASETNING: ​þriðjudaga kl. 16:30 – 17:30
  • VERÐ: 63.750 kr. (60.564 kr. fyrir 31. ágúst 2020)
essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar