Coloriage

Serge Comte opnar sýninguna Coloriage á Mokka 17. janúar. 

Þar sýnir hann hluta af verkum sem kallast Coloriages millimétrés en það eru blýantsmyndir teiknaðar á millímetrapappír.

Fyrstu verkin urðu til árið 2007 þegar listamaðurinn dvaldi á Korsíku.

Þetta er í fyrsta sinn sem verkin eru til sýnis á Íslandi.

Sýningin stendur til 27. febrúar 2019.

 

sergecomte.online.fr

 

KAFFI MOKKA

Skólavörðustíg 3A

101 Reykjavík