NÚ ER OPIРfyrir skráningar í stuttmyndakeppni Sólveigar Anspach 2019

Lokað verður fyrir skráningar þann 9. nóvember 2018

 

Skilyrði fyrir þátttöku:

  • Að kona sé leikstjóri stuttmyndarinnar og hún hafi ekki haft framleiðslufyrirtæki á bak við sig í fleiri en þremur myndum.
  • Þjóðerni leikstjóra: Þátttakandi sé með ríkisfang eða búsetu í frönskumælandi landi, eða sé íslensk eða búsett á Íslandi.
  • Tegund /þema: Öll þemu leyfð.
  • Myndin sé að hámarki 17 mínútna löng, að meðtöldum kreditlistum.
  • Að lokið hafi verið við stuttmyndina eftir 1. janúar 2016.
  • Að myndin sé á frönsku eða íslensku. Það er skilyrði að hún sé með enskum texta.
  • Þátttakendur sem sækja um þurfa að hafa aldrei fengið verðlaun Sólveigar Anspach áður.
UMSÓKN
REGLUR

Stuttmyndirnar, sem dómnefnd velur, verða sýndar í Reykjavík sem hluti af Frönsku kvikmyndahátíðinni.

Netfang: sashortfilms@af.is