Námskeið 6 er ætlað unglingum frá 12 til 16 ára aldurs sem hafa tekið námskeið 5 (B1) og sem eru ekki byrjendur lengur (hafið samband við okkur til að fá frönskukunnáttu barns metið og til að fá ráðgjöf). Þetta stig er B2 í frönsku.

Nemendur öðlast sjálfstæði í tungumálinu. Þeir læra að skilja texta um daglegt líf, að lýsa viðburðum, tala um tilfinningar sínar og drauma í persónulegum bréfum. Þeir læra að tjá sig um ýmislegt í daglegu lífi (t.d. fjölskyldu, frístundir, vinnu, ferðalög og fréttir) og að segja frá persónulegri reynslu sinni. Þá læra þeir að rökstyðja skoðanir sínar.

Þetta námskeið býður nemendunum upp á mörg verkefni sem efla námið í frönsku með því að skrifa, að lesa, að tala og að skilja talmál.

Kennslubók: Adosphère 3 (Hachette) seinni hluti eða Adosphère 4 (Hachette)

Að loknu námskeiðinu stendur börnum til boða að taka DELF Junior B2 prófið

Ein og hálf klukkustund í hverri viku.

Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 6 nemendur.

Frestun og forföll

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í vikunni sem byrjar 3. desember 2018.

Styrkir

Munið að athuga með námsskeiðsstyrki hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi.

  • DAGSETNING: frá 3. september til 7. júní – skóladagatal hér (frídagar og frí)
  • TÍMASETNING: ​fimmtudaga kl. 16:30 – 18:00
  • VERÐ: 83.000 kr. (74.700 kr. fyrir 31. ágúst)
essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar