|
júní 2009
Í fyrsta skipti í Reykjavík : Stóri músíkdagurinn, sunnudaginn 21. júní 2009.

"Stóri músíkdagurinn" verður haldinn í fyrsta skipti í Reykjavík þann 21. júní n.k.
Á dagskránni eru fjölmargir tónleikar í miðbænum eftir hádegið og frá
kl. 21 um kvöldið verða tónleikar á Café Rósenberg (Klapparstíg 25-27).
Frá kl. 13 til 16 stíga áhugamenn og atvinnumenn á stokk og spila af
hjartans lyst á Austurvelli og Ingólfstorgi. Það eru allir velkomnir að
taka þátt og deila ánægju sinni á tónlist, hver sem tónlistartegundin
er (jazz, rokk, klassík, þjóðlagatónlist…). Rás 2 verður á staðnum og
sendir út beint.
Ef þig langar að vera með, hafðu samband við Alliance Française sem fyrst, með tölvupósti alliance@af.is eða í síma 552 3870.
Um kvöldið eru svo allir velkomnir á Café Rósenberg frá kl. 21 að
hlusta á tónleikana "Gainsbourg á íslenska vísu"! Þar ætla nokkrir
ungir og hæfileikaríkir íslenskir tónlistarmenn að leika eigin tónlist
og einnig nýja útfærslu á einu lagi að eigin vali eftir Serge
Gainsbourg. Fram koma: Retro Stefson, Hraun, Sprengjuhöllin, Ólöf Arnalds o.fl. Rás 2 sendir tónleikana út beint.
Það eru Alliance Française í Reykjavík, Franska sendiráðið,
Höfuðborgarstofa, Rás 2 og Grapevine sem standa að Stóra músíkdeginum.
Ef þið misstuð af tónleikunum “Gainsbourg á íslenska vísu”, sem
Alliance Française og Franska sendiráðið stóðu fyrir á Kaffi Rosenberg
sunnudaginn 21. júní eða ef ykkur langar einfaldlega til að hlusta á
hann aftur, smellið þá á hlekkinn hér fyrir neðan:
http://dagskra.ruv.is/ras2/4469924/2009/06/21/
|
Að velja rétta grillvínið
Dominique Plédel í Alliance Française þriðjudaginn 9. júní kl. 20:00
Að grilla hefur verið þjóðaríþrótt Íslendinga á sumrin og hver hefur
sína skoðun á því hvaða vín hentar best með því. En það er líka ágætt
að skoða eitthvað annað en það sem maður er vanur að hafa: humar,
fiskur, kjúklingur, lambakjötið - kryddið eða maríneringin, meðlætið,
allt hefur sitt að segja til að úr verði góð máltíð og þar hefur vínið
ekki síst sitt hlutverk.
Alliance Française og Dominique Plédel, skólastjóri Vínskólans í Reykjavík, http://www.vinskolinn.is/um_vinskolann/, efna til námskeiðs þar sem gefin verða góð ráð til að velja gæðavín á viðráðanlegu verði.
Dagskráin fer fram á íslensku og frönsku.
Verð: 2.900 kr. fyrir félagsmenn, 3.500 kr. fyrir aðra.
Skráning hjá Alliance Française í Reykjavík, Tryggvagötu 8, 101 Reykjavík, á staðnum eða með því að senda tölvupóst á alliance@af.is
eða í síma 552 3870. Hægt er að greiða með millifærslu á bankareikning
okkar um leið og pantað er eða áður en dagskráin hefst. Banki:
0137-26-000378, kt: 420169-1839.
|
Aðalfundur Alliance française 2009
Aðalfundur Alliance française verður haldinn fimmtudaginn 4. júni kl. 20:00 í húsakynnum félagsins í Tryggvagötu 8.
Fundarefni:
- Ársskýrsla forseta
- Samþykkt ársreikninga
- Kosning stjórnar
- Önnur mál
Rétt til fundarsetu hafa allir skuldlausir meðlimir Alliance française.
Stjórn Alliance française endurkosin
Aðalfundur Alliance française, sá 98. í sögu félagsins, var
haldinn í húsakynnum félagsins, Tryggvagötu 8 í Reykjavík, fimmtudaginn
4. júní.
Á fundinum gerði forseti grein fyrir starfsemi félagsins frá maí 2008
til maí 2009, ársreikningar lagðir fram til samþykktar og félaginu
kosin stjórn.
Stjórnin var endurkosin, Friðrik Rafnsson var endurkosinn forseti og
aðrir stjórnarmenn eru þau Bruno Lebas, Eve Leplat, Guðlaug Matthildur
Jakobsdóttir, Guðjón Ármann Eyjólfsson, Marlène Pernier, Philippe Blanc
og Sigríður Snævarr.
Þrátt fyrir efnahagsþrengingar hérlendis var starfsemi Alliance
française blómleg á síðasta starfsári, félagið skipulagði á annan tug
viðburða eitt sér eða í samstarfi við ýmsa aðila, ss, kvikmyndahátíð,
fyrirlestra, menningarnámskeið og fleiri viðburði sem voru afar vel
sóttir. Ennfremur var frönskukennslan blómleg og vel sótt, bæði af
börnum og fullorðnum.
Framundan eru ýmsar nýjungarí starfsemi félagsins og verða þær kynntar síðar.
Með kærri kveðju,
Friðrik Rafnsson
forseti Alliance française
|
maí 2009
"Sælkeragöngur um París", 19. maí kl. 20.00
Nú eru mæðgurnar Sigríður Gunnarsdóttir og Silja Sallé aftur komnar á stjá, en fyrri bók þeirra, Sælkeraferð um Frakkland, hefur notið mikilla vinsælda. Að þessu sinni leiða þær okkur um 20 hverfi Parísarborgar í girnilegri bók sem kallastSælkeragöngur um París – 60 uppskriftir að hamingjunni á Parísarvísu. Þar lifnar heimsborgin við í máli, myndum og mataruppskriftum.
Í tilefni af útgáfu bókarinnar bjóðum við til kynningarkvölds,
þriðjudaginn 19. maí kl. 20.00, í Alliance Française, Tryggvagötu 8.
Þær mæðgur segja frá París, mat og hamingjunni, sýna ljósmyndir og
bjóða upp á veitingar í anda bókarinnar.
|
Árshátíð Alliance Française í Reykjavík, 15. maí kl. 19.30
Kæru vinir,
Árshátíð Alliance Française verður haldin föstudaginn 15. maí 2009 kl. 19.30 að Tryggvagötu 8.
Á dagskránni er fransk-íslenskt vorhlaðborð, frönsk vín og franskur
söngur, allt til að við getum átt saman ánægjulega kvöldstund í
franskri stemmningu.
Tilkynnið þátttöku ykkar fyrir 13. maí með því að senda tölvupóst á alliance@af.is eða með því að hringja í okkur í síma 552 3870 frá kl. 14-18.
Verð á mann:
Félagar Alliance Française og nemendur: 2.200 kr
Aðrir: 2.900 kr.
½ vínflaska innifalin. Viðbótarvínflaska kostar 1.800 kr.
Greiðist um leið og pantað er, eða í síðasta lagi 13. maí á bankareikning Alliance Française nr. 0137-26-378; kt. 420169-1839.
Með stuðningi franska sendiráðsins sem við þökkum kærlega fyrir.
Sjáumst mjög fljótlega!
|
mars 2009
Bókmenntakvöld, þriðjudaginn 31. mars:
Friðrik Rafnsson: Kundera er ekki fiskur - rabb um nýjustu bók Milans Kundera
Þriðjudaginn 31. mars kl. 20:00 verður Friðrik Rafnsson,
bókmenntafræðingur og þýðandi, með rabb í Alliance francaise um nýjustu
bók skáldsagna- og ritgerðahöfundarins Milan Kundera, “Une Rencontre”.
Bókin kom út í París fimmtudaginn 26. mars og hefur þegar hlotið
gríðarlegt lof gangrýnenda í Frakklandi og þykir mikill
menningarviðburður þar. Hér er um að ræða greinasafn í níu hlutum þar
sem Kundera fjallar af því listilegu og skarpa innsæi sem hann er
þekktur fyrir um skáldsagnahöfunda, tónskáld og listmálara sem mestu
máli skipta fyrir hann. Höfundurinn leiðir lesandann í gegnum
skáldsögur allt frá 16. öldinni (Rabelais) til nútímans (Malaparte,
Fuentes, Guðbergur Bergsson, Garcia Marquez), fjallar um arfleifð
tónskálda á borð við Beethoven, Schönberg, Xenakis og Janacek og veltir
fyrir sér fagurfræði listmálara eins og Francis Bacon og Ernest
Breleur.
Bókin er stórmerkilegt ferðalag um menningu Evrópu frá 16. öld
til nútímans (raunar með viðkomu á eyjunni Martinique í Karíbahafinu) í
aðgengilegri og persónulegri leiðsögn eins merkasta og vinsælasta
rithöfundar samtímans. Bókin er nýkomin út hjá virtustu bókaútgáfu
Frakklands, Gallimard, en kemur síðan út í hverju landinu á fætur öðru,
alls um 40 löndum. Hún er væntanleg á íslensku hjá JPV útgáfu í haust.
Friðrik Rafnsson vinnur að þýðingu bókarinnar um þessar mundir
og mun í rabbinu segja frá henni og fara yfir helstu atriðin í
höfundarferli Kundera, en hann verður áttræður þann 1. apríl n.k.
Fyrirlesturinn verður á íslensku, en útdráttur verður á frönsku. Einnig
verða sýndir 3 stuttir bútar úr sjónvarpsviðtölum frá ýmsum tímum.
|
Heimildamyndir um Yves Saint-Laurent og tímaritið Elle
- Norræni tískutvíæringurinn.
Alliance Française er það mikil ánægja að vera þátttakendur í
fyrstu hátíð Norræna tískutvíæringsins og bjóðum við ykkur af því
tilefni að sjá tvær heimildamyndir sunnudaginn 22. mars kl. 17 og kl.
20 í Norræna húsinu, Sturlugötu 5, 101 Reykjavík:
Kl. 17, "Yves Saint-Laurent, 5 avenue Marceau 75116 Paris",
eftir David Teboul, 2002, 85 mín: fylgst er með því þegar hátískan
verður til, allt frá fyrstu rissu til tískusýningar. David Teboul,
leikstjóri myndarinnar, fer með okkur baksviðs hjá tískurisanum, sem
samþykkir í fyrsta sinn að opna dyr tískuhúss síns fyrir
kvikmyndafólki.
Kl. 20, "Og Elle skapaði konuna" eftir David Teboul ; 2006, 84
mín: Það þekkja allir tískutímaritið Elle. Þetta alþjóðlega tímarit kom
fyrst út í Frakklandi árið 1945, en þessi heimildamynd fjallar um sögu
tímaritsins, hlutverk þess í kvenréttindabaráttu frá því á 7. áratugnum
og stöðug áhrif þess á sögu tískunnar.
|
Vika franskrar tungu: morgudagurinn
- frönskustrætó fer í grunnskólana, opið hús í Alliance française,
ljósmyndasýning “Myndir morgundagsins” og ljóðakeppnin “Allons en
France”
Í marsmánuði ár hvert er haldin alþjóðleg vika franskrar tungu.
Tilgangurinn með henni er að minna á að franska er móðurmál 200
milljóna manna um heim allan og sameina 870 milljónir íbúa og
ríkisstjórna þeirra 70 landa sem eru í Alþjóðasamtökum frönskumælandi
landa (Organisation internationale de la Francophonie). Alliance
Française í Reykjavík tekur þátt í þessum alþjóðlegu hátíðahöldum
dagana 16. til 21. mars. Þemað í ár er “Morgundagurinn”. Að auki voru
þessi 10 orð valin, til að leika sér með þetta þema: Annars staðar, fangari, jarðskin, smellur, samræmanlegt, þrá, genamengi, varanlegt, umbreyta, sýn (http://www.semainelf.culture.fr/).
Alliance Française tekur þátt í þessum alþjóðlega fagnaði og fer á fund
barnanna, fullorðna fólk morgundagsins til að uppgötva frönsku.
1. Þriðjudaginn 17. mars til fimmtudagsins 19. mars,
frönskustrætó fer í nokkra grunnskóla í Reykjavík til fundar við yngstu
nemendurna:
Allir muna eftir Risessunni og pabba hennar sem lögðu Reykjavík undir
sig fyrir fáum árum, ungum sem öldnum til undrunar og ánægju. Risessan
talaði frönsku, tungumál sem fæstir ungir krakkar tala, en nú er hægt
að bæta úr því. Þrjá morgna fara þrír frönskukennarar Alliance
Française á stúfana til að hitta íslenska æsku, nemendur 2., 3. og 4.
bekkjar í nokkrum grunnskólum í Reykjavík og kynna fyrir þeim frönsku í
gegnum leik og smáverkefni.
Þriðjudaginn 17. mars fer strætóinn í Norðlingaskóla og Víkurskóla;
þann 18. verður hann við Melaskóla og fimmtudaginn 19. við
Landakotsskóla og Hlíðaskóla.
2. Opið hús föstudaginn 20. mars:
Frá kl. 10 til 18 verður opið hús í Alliance Française fyrir
alla þá sem hafa hug á að kynna sér franska tungu og menningu.
Menntaskólanemar sem læra frönsku eru velkomnir, og gefst þeim tækifæri
til að sjá ljósmyndasýninguna og vinna verkefni um orðin 10.
Með þátttöku Sendiráðs Kanada.
3. Föstudaginn 20. mars, kl. 18-20, opnun ljósmyndasýningarinnar “MORGUNDAGURINN Í MYNDUM”:
Ljósmyndasýning Fókuss, félags áhugaljosmyndara (www.fokusfelag.is/index.php)
"MORGUNDAGURINN Í MYNDUM" verður sýnd í húsakynnum Alliance Française,
Tryggvagötu 8, Reykjavík frá 20 mars til 11. apríl
Sýningin er haldin í tilefni af alþjóðlegri viku franskrar tungu, og
eru myndirnar allar í tengslum við eitt af þeim 10 orðum, sem
Menningarráðuneyti Frakklands lagði til fyrir þessa viku.
Félagar Fókus völdu fyrir þessa sýningu yfir 200 ljósmyndir, sem verða
sýndar á tölvuskjám. Fókusfélagar nálgast hér sýningarformið á
nýstárlegan hátt; með tæknina að vopni er boðið upp á þennan mikla
fjölda mynda, þar sem ljósmyndarar nálgast viðfangsefnið á mjög
mismunandi og áhugaverðan hátt.
Sýningin er styrkt af EJS ehf. (http://www.ejs.is/), en þeir leggja til tölvur og skjái.
4. Laugardaginn 21. mars, frá kl. 13 til 15 í
Borgarbókasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, Frönsk ljóðasamkeppni:
“Allons en France“. Félag frönskukennara á Íslandi og Sendiráð
Frakklands standa fyrir ljóðasamkeppninni “Allons en France”. Þessi
samkeppni er ætluð öllum menntaskólanemum og fer þannig fram að
þátttakendur skrifa og lesa síðan upp texta um borg og borgarlíf.
Vinningshafinn fær vikuferð til Frakklands í sumar að launum!
|
febrúar 2009
Vetrarhátíð í Alliance Française : Ljósin í myrkrinu.
Hugleikur Dagsson og Amanda Riffo í Alliance Française, Tryggvagötu 8, 101 Reykjavík
Sýning frá 13. til 28. febrúar.
Í tilefni af Vetrarhátíð í Reykjavík, býður Alliance Française upp á 2 sýningar : « Dark Alliance» eftir Hugleik Dagsson og « Hanabi » eftir Amanda Riffo.

H. Dagsson, Sans titre, 2009
|

Amanda Riffo, Hanabi, 2005
|
Í tvær vikur í febrúar umbreytist Alliance Française í dimman
helli, þar sem áður óútgefnar teikningar eftir Hugleik Dagsson verða
til sýnis, afhent verða vasaljós til að lýsa upp og skoða
teikningarnar. Hefur þú einhvern tímann séð svarta flugelda ? Amanda
Riffo, ung frönsk listakona, sem er núna að vinna að list sinni á
Íslandi, sýnir svarta flugelda. Það verða með öðrum orðum 2 sýningar
til að njóta ljósanna í myrkrinu.
Aldrei þessu vant verður Alliance Française opið föstudagskvöldið
13. febrúar frá kl. 19 til miðnættis með þátttöku í Safnanótt. Frekari
upplýsingar er að finna á heimasíðu Vetrarhátíðar í Reykjavíkhttp://www.vetrarhatid.is/desktopdefault.aspx/tabid-2813
Komið í Alliance föstudagsvöldið 13. febrúar og vinnið helgarferð
til Óslóar með því að taka þátt í skemmtilegum leik sem Reykjavíkurborg
býður upp á, sjá :
http://www.vetrarhatid.is/PortalData/11/Resources/safnanott_anskaeraA5_2.pdf
Fyrir þá sem vilja frekari upplýsingar um listamennina, þá eru þetta heimasíður þeirra :
Amanda Riffo :
Á frönsku,, http://www.schirman-debeauce.com/index.php?id=109&L=0
Á ensku, http://www.schirman-debeauce.com/index.php?id=109&L=1
Hugleikur Dagsson :
http://www.myspace.com/hugleikur
http://www.dagsson.com/
http://fr-fr.facebook.com/pages/Hugleikur-Dagsson/13583104825
|
janúar 2009
Frönsk kvikmyndahátíð
Alliance Française í Reykjavík, Sendiráð Frakklands á Íslandi og Græna ljósið kynna franska kvikmyndahátíð, sem verður haldin í 9. sinn dagana 16. til 29. janúar í Háskólabíói.
Á dagskránni eru 10 kvikmyndir: 8 franskar myndir en í ár eru einnig 2
myndir sem ekki eru franskar, en eru á frönsku: önnur belgísk og hin
kanadísk. Þessar myndir sýna vel fjölbreytni franskrar kvikmyndagerðar.
Hr. Olivier Mauvisseau, sendiherra Frakklands á Íslandi og Hr. Friðrik
Rafnsson, forseti Alliance Française í Reykjavík opna kvikmyndahátíðina
við sýningu á myndinni “Skólabekkurinn” sem Laurent Cantet leikstýrir,
þann 15. janúar kl. 20.00 (eingöngu fyrir boðsgesti): þessi mynd hlaut
Gullpálmann 2008 á kvikmyndahátíðinni í Cannes, hún fékk mjög mikið lof
dómnefndar og áhorfenda. Myndin sýnir mjög frumlegt sjónarhorn á
skólastarfið. Sérstök sýning “spurningar/svör” verður haldin mánudaginn
19. janúar kl. 17.30 fyrir menntaskólanema og kennara.
Eins og fyrr segir, er bryddað upp á þeirri nýjung í ár, að nú
eru ekki aðeins franskar myndir á dagskránni, þar eru líka kanadíska
kvikmyndin “C.R.A.Z.Y” og frá Belgíu kemur “Niðdimm nótt”. Sérstakar
sýningar verða á þessum myndum föstudagskvöldið 16. janúar: “C.R.A.Z.Y”
kl. 20.00 (eingöngu fyrir boðsgesti), Frú Anna Blauveldt, sendiherra
Kanada verður viðstödd og á miðnætti verður sérstök miðnætursýning á
hinni töfrandi mynd Belgans Olivier Smolders, “Niðdimm nótt”.
Annað atriði sem vert er að benda á, er að Luc Jacquet,
leikstjóri myndanna “Refurinn og barnið” og “Ferðalag
keisaramörgæsanna”, kemur til Íslands í tilefni af kvikmyndahátíðinni
og verður viðstaddur sýningu myndarinnar laugardaginn 17. janúar kl.
20.00. Hann ætlar að skoða aðstæður á Íslandi fyrir næstu kvikmynd
sína, en það kemur sterklega til greina að hún verði tekin hér á landi.
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri!
Lýsing á myndum hátíðarinnar er hér
Dagskrá hátíðarinnar er hér
Miðaverð til félagsmanna í Alliance Française (sýnið félagsskírteinið) og frönskunema er 500 kr.
|
desember 2008
“Opin bók”
Bókmenntakvöld: Til heiðurs Jean-Marie Gustave le Clézio, Þriðjudaginn 9. desember 2009, kl. 20.00,
Til heiðurs Jean-Marie Gustave le Clézio, bókmenntaverðlaunahafa Nóbels 2009 Miðvikudaginn
10. desember tekur Jean-Marie Gustave le Clézio á móti
bókmenntaverðlaunum Nóbels í Stokkhólmi. Alliance Française í Reykjavík
ætlar að heiðra þennan mikla rithöfund franskra bókmennta og býður
ykkur að kynnast verkum hans.
Á dagskránni: heimildamynd um rithöfundinn, sem er dregin úr seríunni
“Rithöfundar í eina öld” (lengd: 45 mín); Torfi Tulinius, prófessor við
Háskóla Íslands kynnir “Viðlag svengdarinnar” (“Ritournelle de la
faim”), sem var gefin út í haust, og upplestur valdra kafla á frönsku.
Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast verkum eins af þekktustu samtímarithöfundum í frönsku bókmenntum.
Bókmenntakvöldið fer fram á íslensku og frönsku. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir
|
|
|
Jólamatur og tónleikar
Alliance Française, laugardaginn 6. desember kl. 19.30
Tími jólahlaðborðanna er kominn. Hið árlega fransk-íslenska
jólahlaðborð Alliance Française verður haldið í húsnæði Alliance
Française að Tryggvagötu 8 laugardaginn 6. desember klukkan 19.30. Á
matseðlinum er nægtahorn fyllt með gæsalifur, húskarlahangikjöti,
villigæsabringu, frönskum ostum, ávöxtum og makkarónukökum, o.s.frv.,
öllu rennt niður með frönskum vínum og undir ljúfum tónum kvartettsins
Fagotterí, sem býður í lok kvölds upp á jólatónlist.
Pantaðu strax í síma 552 38 70 frá kl. 14-18 eða með tölvupósti, alliance@af.is Verð
: 3.800 kr (½ flaska af víni innifalin). Lengd tónleikanna er 30 mín.
Greiðist um leið og pantað er, eða í síðasta lagi 6. desember, á
bankareikning Alliance Française 0137-26-378, kt: 420169-1839. Með
stuðningi franska sendiráðsins, sem við þökkum kærlega fyrir.
|
nóvember 2008
“Opin bók”
Benoît Duteurtre í Alliance Française, þriðjudaginn 25. nóvember, kl. 20.00
Alliance Française efnir til bókmenntaklvölds sem tileinkað er
franska rithöfundinumn Benoît Duteurtre í tilefni af útgáfu bókar hans "Litla stúlkan og sígarettan" sem nýverið kom út hjá bókaútgáfunni Skruddu í íslenskri þýðingu Friðriks Rafnssonar.
Duteurtre er talinn einn af áhugaverðustu rithöfundum Frakka um þessar
mundir, í senn hárfínn stílisti, hárbeittur húmoristi og
þjóðfélagsrýnir. Þetta kvöld verður einkum helgað "Litlu stúlkunni og
sígarettunni", en einnig verður dregin upp mynd af ferli Duteurtre og
stöðu hans í frönskum samtímabókmenntum.
Þetta er einstakt tækifæri til að hitta og hlusta á einn frumlegasta og
vinsælasta rithöfund franskra samtímabókmennta, en bækur hans hafa
verið þýddar á fjölmörg tungumál.
Nánar um Litlu stúlkuna og sígarettuna:
Lítil stúlka kemur að fertugum borgarstarfsmanni þar sem hann er að
laumast til að reykja sígarettu inni á salerni í vinnunni.
Hversdagslegt atvik sem þó er litið grafalvarlegum augum og hrindir af
stað hryllilega fyndinni atburðarás sem sagnameistarar eins og Swift og
Kafka hefðu verið fullsæmdir af.
Þetta er listilega fléttuð, spennandi og bráðsmellin saga sem gerist í
ímynduðu en kunnuglegu framtíðarsamfélagi. Undir sakleysislegu
yfirborðinu veltir höfundur fyrir sér áleitnum spurningum um ýmis
málefni, svo sem hvort börn eða fullorðnir eigi að ráða ferðinni í
samfélaginu, hvort ást og manngæska séu tegundir í útrýmingarhættu,
hvort fjölmiðlar eigi að leysa dómstóla af hólmi og hvort það sé minni
glæpur að myrða lögreglumann en að reykja í laumi.
Umsagnir: Það sem hrífur mig mest í Litlu stúlkunni og
sígarettunni er hvernig sagan varpar ljósi á innbyggða heimsku nútíma
samfélags; svartur húmor sem snýr hreinasta hryllingi upp í töfrandi
dauðadans.
- Milan Kundera
... háðsk ádeila á nútímasamfélagið ... pólitísk rétthugsun er
allsráðandi en heilbrigð skynsemi og góðvild má sín lítils ...
bráðskemmtileg bók og hressandi lesning í öllu því fári vondra bóka sem
nú ríður yfir veröldina.
- Jón Þ. Þór, DV
Frábær bók, alveg frábær bók!
- Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni
... skyldulesning nú á tímum vaxandi heimsku og sefjunar. Stórmerkileg lesning.
- Bjarni Harðarson, Sunnlenska bókakaffið
Bókmenntakvöldið fer fram á íslensku og frönsku. Aðgangur er ókeypis
og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Bókin verður seld á
sérstöku tilboði af þessu tilefni og höfundur áritar hana fyrir þá sem
þess óska.
|
Vínsmökkunarnámskeið
Ferðast á nefinu um helstu vínhéruð Frakklands - vínsmökkunarnámskeið í Alliance Francaise þriðjudaginn 4. nóvember kl. 20:00
Sítróna, ristað brauð, múskat, hunang, trufflusveppur....vissuð þið að
menn hafa fundið meira en þúsund lyktar- og bragðtegundir í vínum! Til
að leiða áhugasama inn í veröld franskra eðalvína býður Alliance
Française upp á vínsmökkunarnámskeið þriðjudaginn 4. nóvember kl. 20:00
undir leiðsögn Alexandre Martin, vínsmökkunarfræðings sem kennir við
Ecole du Nez (Nefskólanum) í Paris, www.ecoledunez.fr
Á námskeiðinu, sem stendur yfir í einn og hálfan klukkutíma er
þátttakendum kennt að þekkja lyktar- og bragðtegundir ýmissa franskra
eðalvína og í því skyni er beitt aðferðum sem eru sambland af kennslu
og leik.
Kennarinn, Alexandre Martin, notar safn sýnishorna af vínum sem Jean Lenoir hjá Nez du vin, http://www.lenezduvin.fr/54.html
hefur sett saman og leiðsegir fólki í gegnum hinar ýmsum
vínberjategundir og vínræktarhéruð Frakklands. Hér erum að ræða
einstakt tækifæri til að fá innsýn í franska vínmenningu frá fyrstu
hendi og læra þannig hversu mikil nautn það getur verið að smakka gott
vín.
Í lok námskeiðsins verðar tvær tegundir franskra vína smakkaðar og kynntar sérstaklega.
Alexandre MARTIN fæddist árið 1972 í Pessac. Hann lærði vínrækt
í Montpellier, vann seinna um skeið í Vínsafninu í París (Musée du Vin
à Paris) og hefur átt þátt í að byggja upp og þróa vínkjallara
munaðarverslunarinnar Fauchon. Árið 2005 bauð Jean Lenoir, heimsfrægur
vínfræðingur, honum til samstarfs í vínskólanum Ecole du Nez og þar
starfar hann nú.
Námskeiðið verður haldið í Alliance francaise, Tryggvagötu 8,
þriðjudaginn 4. nóvember kl. 20:00. Verð er 3900 kr. fyrir meðlimi
Alliance, en 4900 kr. fyrir aðra. Námskeiðið verður haldið á frönsku og
ensku. Skráning fer fram í síma 5523870 eða í alliance@af.is
Alexandre Martin kemur hingað til lands með stuðningi franska sendiráðsins á Íslandi.
|
október 2008
Cyril de Pins: Bókmenntatímarit í Frakklandi nútímans.
"Opin bók", bókmenntakvöld á vegum Alliance Française, miðvikudaginn 29 október kl, 18:00
Alliance Française hyggst í vetur að gangast fyrir bókmenntakvöldum sem
bera yfirskriftina "Opin bók". Fyrsta kvöldið í þessari röð verður
haldið miðvikudaginn 29. október kl. 18:00, en þá flytur Cyril de Pins
fyrirlestur sem ber yfirskriftina: "Bókmenntatímarit í Frakklandi
nútímans".
Allt frá því á fyrri hluta 20. aldarinnar hafa mörg blómleg
tímarit verið gefin út í Frakklandi og verið mikilvægur hluti
menningar- og bókmenntalífsins þar. Hverngi er því varið nú? Mörg
tímarit eru gefin út, stundum í fremur litlu upplagi, en þau eru engu
að síður vettvangur fyrir ný verk og þar skiptast menn á skoðunum, oft
hatrammlega, um bókmenntir, stjórnmál og siðferði.
Hvaða mynd verður til af frönskum bókmenntum og hugsun þegar
litið er yfir sviðið í tímaritaútgáfu í Frakklandi nú? Í fyrirlestrinum
ætlar Cyril de Pins að leita svara við þessari spurningu og taka dæmi
af nokkrum tímaritum máli sínu til stuðnings Sum þeirra eru rótgróin
eins og Nouvelle Revue Française eða Europe, önnur nýrri eins og La Revue littéraire, l'Atelier du roman eða Ligne de risque.
Cyril de Pins kennir heimspeki og vinnur að ritgerð í málvísindum um
hugsunina í íslensku og okksídönsku á miðöldum. Hann skrifar oft sem
gagnrýnandi í tímarit eins og www.boojum-mag.net og www.causeur.fr.
Fyrirlesturinn verður haldinn miðvikudaginn 29. október kl. 18:00 í
Alliance francaise, Tryggvagötu 8. Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill. Hann verður fluttur á frönsku og túlkaður á íslensku.
|
"Súkkulaði í allri sinni dýrð"
Súkkulaðismökkunarnámskeið þriðjudaginn 14. október í Alliance Française, Tryggvagötu 8.
Nýjustu rannsóknir á tilfinningalífi og heilastarfsemi okkar hafa leitt
í ljós að neysla súkkulaðis veitir okkur svipaða vellíðunartilfinningu
og ástin. Það er því eins með ástina og súkkulaðið, það þarf að vanda
valið vel. Þetta er ekki öllum gefið, en hægt er að læra það og því
býður Alliance francaise upp á eins kvölds námskeið þriðjudagskvöldið
14. október þar sem þátttakendur verða leiddir inn í undraheima
súkkulaðisins.
Farið verður yfir sögu súkkulaðis, hvað baunirnar heita hvaðan matreiðslumönnum heims.
þær koma og hvernig súkkulaði er búið til. Þátttakendum verður boðið að
smakka 8 tegundir af súkkulaði, þeim kennt að smakka súkkulaði og hvaða
brögð við finnum í munninum.
Á námskeiðinu verður smakkað hið franska Valrhona súkkulaði,www.valrhona.com,
en það fyrirtæki var stofnað árið 1922. Valrhona er hráefni sem er
viðurkennt og notað af bestu bökurum og súkkulaðigerðarmönnum og þeir
leggja mikið upp úr að nýta möguleika súkkulaðisins á sem
fjölbreyttastan hátt.
Kennari er Viggó Vigfússon, kokkalandsliðsmaður og súkkulaðikonnessör. Kennt verður á íslensku.
Lengd námskeiðsins er um 1 klst. og 15 mín.
Verð: 3.900 (kr. 3.000 fyrir félagsmenn Alliance Française) ATH. Takmarkaður fjöldi.
Skráning á námskeiðið á alliance@af.is eða í síma 552 3870. Einnig er hægt að skrá sig á skrifstofu l'Alliance Française, Tryggvagötu 8.
|
"Fjöltyngi í Evrópu"
Þriðjudagskvöldið 7. október býður Alliance Française í Reykjavik
öllu fag- og áhugafólki um tungumál til umræðukvölds um fjöltyngi.
Í tilefni af evrópska tungumáladeginum 2008 þann 26. september var
gríðarmikil ráðstefna haldin af Frökkum, sem nú eru í forsæti í
Efnahagsbandalaginu, um tungumál og fjöltyngi. Ráðstefnan var haldin í
hátíðarsal Sorbonneháskóla í París þar sem ýmsir af helstu ráðamönnum
ESB ræddu stefnumótun í tungumálakennslu á næstu árum. Þrjú helstu
málefnin til umræðu voru "Fjöltyngi og miðlun verka innan Evrópu",
"Fjöltyngi, samkeppni í efnahagsmálum og félagsleg aðlögun" og "Sköpun
og nýjungar í margtyngdri Evrópu."
Meðal þeirra sem sóttu ráðstefnuna voru Einar Skúlason,
framkvæmdastjóri Alþjóðahússins, Erna Árnadóttir frá
Menntamálaráðuneytinu og Friðrik Rafnsson, þýðandi og forseti Alliance
Française í Reykjavik. Þau munu fara yfir þær umræður sem fóru fram á ráðstefnunni og greina frá helstu niðurstöðum hennar.
Kvöldið verður haldið í húsakynnum Alliance Française í Reykjavik, Tryggvagötu 8, þriðjudaginn 7. október og hefst kl. 20.00. Umræður fara fram á ensku, frönsku og íslensku. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
|
september 2008
Hveralífríki í djúphöfunum: Daniel Desbruyères heldur Charcot fyrirlestur
Þann 16. september 1936 fórst franski leiðangursstjórinn og
landkönnuðurinn Jean-Baptiste Charcot með allri áhöfn utan einum á
rannsóknaskipinu Pourquoi Pas? út af Mýrum í Borgarfirði og átti þá að
baki langt og merkilegt rannsóknarstarf á suður- og
norðurheimsskautunum ásamt mönnum sínum.
Til að minnast þessa merka vísindamanns, landkönnuðar og Íslandsvinar
standa Alliance Francaise, Franska Sendiráðið og Háskóli Íslands að
fyrirlestri um forvitnilegar rannsóknir sem unnar í anda Charcot.
Ætlunin er að slíkur fyrirlestur verði haldinn árlega, Þekktur franskur
djúpsjávarlíffræðingur, dr. Daniel Desbruyeres ríður á vaðið, en hann
er sérfræðingur hjá IFREMER, frönsku hafrannsóknarstofnuninni. Hann
flytur opinn fyrirlestur á ensku um lífríki við neðansjávarhveri í
djúphöfunum, afar spennandi verkefni sem m.a. hefur verið unnið úr
nýjasta hafrannsóknaskipi Frakka sem einmitt er nefnt eftir frægasta
rannsóknaskipi Charcots, Pourquoi Pas?
Daniel Desbruyères er meðal fremstu djúpsjávarlíffæðinga heimsins og
hefur stundað rannsóknir á djúpsjávarhverum í yfir 30 ár. Í
fyrirlestrinum kynnir hann nýjustu djúpsjávarhverina og sýnir fjölda
ljósmynda af lífverum á þessu forvitnilegu hverasvæðum.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Öskju, náttúrufræðahúsi, stofa 132, þriðjudaginn 16. september, kl. 17.15.
|
|