|
Velkomin til Alliance française í
Reykjavík
september | október | nóvember | desember | janúar | febrúar | mars | apríl | maí
september
2005
Hægt er að skrá sig á námskeið.
Innritun fer fram dagana 1 til 16 september 2005.
október
2005
Frönsk Katalónía til
Íslendinga…sumarið framlengt!!!
Vínuppskeruhátíð á Íslandi: Í fyrsta skipti verður haldin
Vínpressu hátíð í hér á landi!
Það dugar ekkert annað en 300kg af Carignan þrúgum frá
Roussillon-héraðinu sem stöppuð verða af íslenskum vínþjónum í
miðborg Reykjavíkur í portinu bak við Jómfrúna. Vínekran Bourgogne
ehf, Roussillon héraðið og Jean Luc Pujol í samstarfi við
Vínþjónasamtökin, Franska Sendiráðið, og Alliance Francaise standa
að þessum skemmtilega viðburði. Styrktaraðilar sem koma að þessi eru
m.a. Icelandair, Seglagerðin Ægir,Icelandair Cargo
Vínpressuhátíðin, laugardaginn 15. október í portinu milli
Hótel Borgar og Jómfrúarinnar, á undan Norðurlandakeppni vínþjóna
eða frá kl.14.00.
Komið og smakkið þrúgurnar, safann og takið þátt í víngerðinni !
www.vinekran.is |
|
|
Mánudaginn 17.
október kl. 17:15 – 19:15 verður
Gilles Elkaïm
með fyrirlestur í Öskju (náttúrufræðahús HÍ), stofu 132.
Fyrirlesturinn er í boði Alliance française og franska sendiráðsins
á Íslandi.
Gilles Elkaïm er
eðlisfræðingur og þekktur fyrir könnunarleiðangra sína. Árið 2000
lagði hann einn í 3 ára ferð frá Norðurhöfða í Noregi til
Beringssunds (12.000 km) á hundasleða og kajak. Á fyrirlestrinum mun
hann sýna kvikmynd sem hann tók á þessu ferðalagi og kynna hana.
Eftir myndina mun hann spjalla við áheyrendur um þessa reynslu sína
og hlutverk landkönnuðarins á tímum gervihnatta. Eru ævintýri enn
möguleg á 21. öld? Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
|
 |
|
 |
|
Tónleikar Nicolas Stavy verða
haldnir í Norræna Húsinu, laugardaginn 22.október kl. 18.
Einstakir tónleikar hins margverðlaunaða franska píanióleikara
Nicolas Stavy, verða haldnir laugardaginn 22. október kl. 18 í
Norræna húsinu. Tónleikarnir eru í boði Franska sendiráðsins á
Íslandi. Listamaðurinn mun flytja lög eftir Chopin og Debussy.
Aðgangur ókeypis.
|
 |
nóvember
2005
| Stærstu stundirnar sögu franska
sjónvarpsins, 4. Nóvember kl.18:00 í húsakynnum sínum að
Tryggvagötu 8. Hér gefst tækifæri til
þess að upplifa eða endurupplifa meira en 50 ár af frönsku
sjónvarpi. Um er að ræða nær 2 klukkustunda mynd þar sem safnað
hefur verið saman gömlum sjónvarpsupptökum úr myndasafni franska
hljóð- og myndskjalasafnsins (INA). Þessum myndskeiðum hefur verið
skipt í 7 flokka: sjónvarp, stjórnmál, leikið efni, tónlist,
íþróttir, fólk og umheimurinn.
Þetta er kjörið tilefni til þess að fara aftur í tímann og (endur-)
upplifa ógleymanleg augnablik úr sögu sjónvarpsins. Myndinni verður
varpað á breiðtjald með enskum texta og eftir sýninguna gefst
áhorfendum kostur á að skiptast á skoðunum og rifja upp gamla tíma.
|
 |
 |
Kvikmyndaklúbbur Alliance Francaise og Filmundur
kynna: "Allir heimsins morgnar" eftir Alain Corneau (1991),
með Gérard Depardieu, Guillaume Depardieu og Jean-Pierre Marielle.
Herra Sainte Colombe er ómdeilanlega snillingur gömbunnar. Við dauða
eiginkonu sinnar dregur hann sig í hlé og helgar sig algerlega
tónlistinni og uppeldi dætra sinna: Madeleine og Toinette. Hann
fellst þó á að taka hinn unga og upprennandi Marin Marais í læri.
Umsagnir: Louis-Delluc verðlaunin og Cesarinn fyrir bestu myndina
árið 1991. Allir heimsins morgnar er mjög áhrifamikið verk þar sem
allt hjálpast að: gott handrit, falleg myndataka, tónlist sem m.a.
er spiluð af Jordi Savall og frábær leikur úrvals leikara. Þetta er
því mynd sem hægt er að sjá aftur og aftur.
Mydin verður sýnd í Háskolabíói, fimmtudaginn 17.nóvember
kl. 22.20, sunnudaginn 20. nóvember kl.17.45 og mánudaginn
21. nóvember kl 20.00
Hún er með enskum texta
Aðgangur er ókeypis fyrir meðlimi í Alliance française sem sýna
félagsskirteini og persónuskilríki við innganginn. |
|
Bókmenntakvöld: Þann
25. nóvember, kl. 19:00 verður haldið bókmenntakvöld hjá
Alliance française í tilefni af útgáfu bókar Elínar Pálmadóttur
á frönsku:
“Fransí biskví - frönsku
Íslandssjómennirnir”
Elín mun kynna bók sína og Gérard
Lemarquis mun lesa kafla bókarinnar, valda í samvinnu við
rithöfundinn. Síðan munum við sýna kvikmynd eftir Patrice Roturier
“Íslendingurinn” (45 mín.).
Kynnir kvöldsins verður Torfi Tulinius, og mun hann lýsa atburðinum
út frá sögulegu umhverfi þess áður en hann opnar umræður.
Hægt verður að kaupa bók Elínar sem mun árita hana við þetta
tækifæri. |
 |
desember 2005
|
Myndasögur
Alliance Francaise býður
félagsmönnum og öðrum að koma og líta á fyrstu myndasögubók Jan
Pozok Þessi franska listgrein, myndasagan, er hér í nýjum búningi
þar sem Jan býður upp á sína útgáfu af íslensku jólasveinunum.... á
frönsku.
Sýning á myndum úr
bókinni og skissum. Höfundurinn áritar bækur í húsnæði AF 1.
desember kl. 16:00. |
|
| Sögustund
Alliance française mun frá laugardeginum 3.
desember bjóða upp á sögutíma fyrir börn. Þessi sögutími
verður fyrsta laugardaginn í hverjum mánuði frá kl. 14:00 til kl.
15:00. Lesið verður úr frönsku barnabókum. Umsjónarmaður
sögutímans verður Benjamin Descamps, sem mun lesa fallegar sögur
fyrir börnin.
Börnin sem koma í sögutímann verða að vera í fylgd fullorðna.
|
|
| Jólakvöldverður
Alliance française mun vera með sinn árlega
jólakvöldverð laugardaginn,
10. desember kl. 20:00. François Fons, matreiðslumeistari,
mun einnig nú, bjóða upp á ljúffengan matseðil, sem ætti að verða
góð byrjun á jólahátíðinni.
Æskilegt er, að fólk
panti kvöldverðinn fyrir 5. desember, vegna þess að plássið er
takmarkað..
Verð: kr. 3.800 (1/2 vínflaska er innifalin) – greitt er við pöntun. |
|
Sendiráð Frakklands, sendiráð Þýskalands, Goethe Zentrum og Alliance
française bjóða ykkur á kvikmyndatónleika laugardaginn
17.desember kl. 20:00 í Loftkastalanum.
Aðgangur er ókeypis.
Franska hljómsveitin Angil leikur með íslenskum
strengjakvartett frumsamda tónlist við myndirnar Sunrise
eftir Murnau og Rien que les heures eftir Cavalcanti.
|
 |
janúar 2006
Alliance française tilkynnir hér með að
frönsk kvikmyndahátíð
byrjar þ. 12. janúar og mun ljúka þann þ. 30. janúar n.k. ( verður
hugsanlega framlengd).
Tíu kvikmyndir verða sýndar:
ATH: Takmarkað magn af boðsmiðum fyrir meðlimi
AF á opnunarsýninguna (hver boðsmiði er fyrir tvo). Opnunarsýningin
verður fimmtudaginn þ. 12. janúar kl. 19:30 í Háskólabíó. Myndin sem
sýnd verður heitir "Lemming", Leikstjórinn Dominik Moll verður
víðstaddur til að kynna myndina. Hafið sem fyrst samband við okkur !
Hægt verður að kaupa sérstakan kvikmyndapassa fyrir meðlimi Alliance
française fyrir fyrstu 100 meðlimi sem mæta í Alliance française
fyrir 2.000 krónur (á 10 myndir).
Venjulegt verð fyrir passann er 4.000 kr á allar 10 myndirnar. |
mars 2006
Alliance Française og
Háskólabíó kynna:
L’Esquive (Undanvik)
Sesarverðlaun frönsku kvikmyndaakademíunnar fyrir bestu myndina,
besta handritið, besta leikstjórann og efnilegasta leikara í
kvenhlutverki.
Alliance Française býður áfram upp á ódýrt bíó, upplýsingar um verð
og sýningartíma: sjá hinumegin.
Sýningar í Háskólabíói: Fimmtudaginn 2. mars kl. 22:20 / sunnudaginn
5. mars kl. 17:45 og mánudaginn 6. mars kl. 20:00.
Aðgangur ókeypis fyrir félaga A.F. sem sýna félagsskírteini og
skilríki við innganginn. Fyrir þá sem ekki eru félagar í A.F.: einn
miði ókeypis fyrir hvern keyptan miða.
|
 |
L’Esquive (Undanvik)
Frakkland 2004, 117 mín.
Leikstóri Abdellatif Kechiche
Aðalhlutverk: Osamn Elkharraz, Sara Forestier, Sabrina Ouazani.
Abdelkrim, kallaður Krimo er 15 ára og býr í bæjarblokk í úthverfi
Parísar. Móðir hans vinnur í stórverslun og faðir hans er í
fangelsi. Saman láta þau sig dreyma um að sigla á heimsenda á
seglskútu. Í millitíðinni lætur hann sér leiðast með besta vini
sínum, Eric og kunningjum þeirra úr hverfinu. Vorið er komið og
Krimo fellur fyrir stúlku úr sama bekk, hinni kjaftglöðu og glettnu
Lydiu. |
Barnabíó : Black Mór eyjan
kvikmynd eftir Jean-François Laguionie
Fjársjóðaleitin byrjar sannarlega með þessari teiknimynd! Hún gerist
árið 1803 við strendur Cornouailles (Bretagne). Kid sem er 15 ára
gamall, hefur tekist að flýja frá munaðaraleysingjahæli, þar sem líf
hans er eins og þrældómur. Hann veit ekki sitt rétta nafn og það
eina verðmæta, sem hann á er kort af eyju, sem datt út úr bók eftir
hinn fræga sjóræningja Black Mór...
Í Alliance française laugardaginn 4.mars kl.14 |
|
Grímuball :
Félag frönskumælandi fólks mun skipuleggja grímuball fyrir börn og
fullorðna í húsakynnum Alliance française. Komið, hlæið og dansið,
og syngið frönsk lög, og ekki gleyma grímubúningnum! Foreldrar eru
beðnir um að koma með köku eða annað góðgæti. Félagið mun sjá um
drykki.
Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá Muriel í síma: 697 7514.
Í Alliance française sunnudaginn 5.mars kl.15 |
|
|
Franska sendiráðið og Alliance
française kynna :
Vika franskrar tungu með Alliance française
Laugardaginn 18. mars í Alliance française
Kl 13 : Ljóðakeppni
Keppnin er haldin á vegum félags frönskukennara á Íslandi.
Framhaldsskólanemar lesa ljóð á frönsku að eigin vali. Sigurvegarinn
fær að launum ferð til Frakklands í tengslum við verkefnið « Allons
en France ».
kl 15 : Leiðsögn um sýninguna «vísindi og listir » af Michel
Depardieu de l´Inserm
60 listaljósmyndir frá læknarannsóknarstofu sýna öðruvísi og ný
sjónarmið um líkamann
kl 16 : Úrslitin úr ljóðakeppninni tilkynnt af Odile Brelier
og léttar veitingar.
Föstudaginn 24 mars í Alliance française
kl 21 : Auglýsinganótt í boði TOTAL
Auglýsingar og skemmtun! Sendiráð Frakklands, Alliance française,
Félag frönskumælandi á Íslandi og félag frönskunema við HÍ taka
höndum saman. Í lok kvöldsins verða dansskórnir teknir fram... |
|
L´Alliance Française og Háskólabíó kynna:
Clean
Kanada, Bandaríkin, Bretland og Frakkland, 2004
Leikstjóri Olivier Assayas
Aðalhlutverk: Maggie Cheung, Nick Nolte, Béatrice Dalle
Genre : Drame
Eftir að unnusti hennar deyr af völdum eiturlyfjaneyslu á Emily þá
ósk heitasta að endurheimta son þeirra sem elst upp hjá
tengdaforeldrum hennar. En til þess að svo megi verða þarf hún að
hefja nýtt líf og losa sig við dópið...
Myndin er sýnd í Háskólabíói. Mánudaginn 20. mars kl. 20:00 /
fimmtudaginn 23. mars kl. 22:20 og sunnudaginn 26. mars kl. 17:45
Aðgangur ókeypis fyrir félaga A.F. sem sýna félagsskírteini og
skilríki við innganginn. Fyrir þá sem ekki eru félagar í A.F.: einn
miði ókeypis fyrir hvern keyptan miða. (bönnuð innan 15) |
 |
apríl 2006
|
Skráningartímabil: 24. til 29.
apríl 2006
Hópnámskeið, 32 tímar frá 2. maí til 24. júní,
kr. 25.000,-
Ef þú veist námsstig þitt, þá geturðu
skoðað tímatöfluna /
verð.
Ef þú óskar eftir, að kennari hjá Alliance française meti námsstig
þitt, geturðu hringt í síma: 552 3870 og pantað tíma (ókeypis). |
|
 |
Fyrirlestur:
“Québec, tungumálaeyja”
Hinn 26. apríl kl. 19. mun Lise Tremblay
halda fyrirlestur um sérstöku frönskunnar í Québec. Eftir
fyrirlesturinn verða umræður með fyrirlesaranum um
menningareinkenni lands hennar. |
|
|
| | ÁRSHÁTÍÐ ALLIANCE FRANÇAISE
Hinn árlegi kvöldverður Alliance française verður
haldinn laugardaginn 29. apríl kl. 20 (í húsakynnum Alliance
française).
Matreiðslumeistarinn François Louis Fons mun á matseðli sínum bjóða
upp á “ paëlla og crème catalane”.
Verð: kr. 3.600 (1/2 flaska af rauðvíni innifalin) - greitt er við
pöntun (fyrir 27. apríl) |
maí 2006
 |
L´Alliance Française og Háskólabíó kynna:
Le
couperet (Öxin)
Leikstjóri: Costa-Gavras. Frakkland 2005, 122 mín.
Aðalleikarar : José Garcia, Karin Viard, Ulrich Tukur
Spennumynd :
Bruno Davert er háttsettur stjórnandi í pappírsverksmiðju. Þegar
verksmiðjunni er lokað missir hann vinnuna ásamt nokkur hundruð
samstarfsmönnum. Hann er reiðubúinn að gera hvað sem er til þess að
fá nýja stöðu við hæfi, jafnvel drepa keppinauta sína.
Sýningar í Háskólabíói : Fimmtudagur 18. maí kl. 22h20 / Sunnudagur
21. maí. Kl. 17h45 / Mánudagur 22. maí kl. 20h0
Aðgangur ókeypis fyrir félaga A.F. sem sýna félagsskírteini
og skilríki við innganginn.
Fyrir þá sem ekki eru félagar í A.F.: einn miði ókeypis fyrir hvern
keyptan miða. |
júní 2006
 |
Frönsk / Íslenskt
tónlistarveisla III hluti
DJ Set
Lady & Bird
( Barði Jóhannsson og Keren Ann )
Laugardaginn 3. júní á Barnum, Laugavegi 22 |
|
 |
 |
 |
 |
|
Ferðamenn frá 66°norður:
ferðalag til Frakklands
Alliance française í Reykjavík skipuleggur dvöl í Frakklandi frá 16.
til 27. júní fyrir 20 manna hóp. Fjölskyldur eru velkomnar.
Dagskrá /
verð (25% afsláttur fyrir nemendur hjá Alliance française sem
eru innritaðir á námskeið frá 2. maí til 24. júní)
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Alliance
française present “Skippers d´Islande”
French Embassy, Reykjavik pure energy, Icelandic / French chamber of
commerce, Samfilm, Icelandair, Vin & Skel, Home, Angelo,
Vinekran.is, Merkurpoint.
Official program from
Wednesday, June, 28th to Saturday July 8th.
|
|
Alliance française
er lokað í sumar frá 1.júlí til 31.ágúst 2006 og opnar aftur
1.september.
Hafið gott í sumar.
|
 Nýtt
heimilisfang: Tryggvagata 8, sími: 552-3870. Fax:
562-3820.
Historique: <sept
2004 - mai 2005 sept
2003 - mai 2004 | sept 2002 - mai
2003 | sept 2001 - mai
2002 | jan - mai 2000 | oct - déc
1999 > |