|
Bókasafn Alliance Française er opið alla virka daga milli klukkan 14 og 18,
og laugardaga milli klukkan 14 til 18.
Í bókasafninu eru 7000 bækur,
myndbönd, franskar kvikmyndir, bæði nýjar og klassískar og eru margar þeirra
með frönskum eða enskum texta. Einnig eru geisladiskar og kassettur með
franskri tónlist og upplestri til útláns.
Aðeins félagar AF geta fengið lánað úr bókasafni en öllum er heimilt að skoða
bækur og annað á staðnum. Árgjald til félagsins er 4.500 kr. Nemendur Háskóla
Íslands og kennarar sem eru í Félagi Frönskukennara greiða 3.500 kr.
Alliance française í Reykjavík hefur ákveðið að víkka út þjónustu við
meðlimi félagsins og bjóða þeim upp á þann möguleika að leigja stóra
veislusalinn sinn (160m2), á sunnudögum milli kl. 10:00 og 21:00.
Salurinn hentar vel til ýmissa nota, ss. til að halda fermingarveislur og
einkasamkvæmi af ýmsu tagi að degi til. Leigan fyrir salinn er 65.000 kr.; taka
þarf salinn frá að minnsta kosti 10 dögum áður en ráðgert er að halda veisluna
og gera um það skriflegan samning. Frekari upplýsingar eru veittar í s. 552
3870 alla virka daga á milli kl. 14:00 og 18:00.
|