Home Ambassade de France en Islande Peugeot

- Persepolis
- Molière
- Lofaðu mér
- Lögfræðingur hryðjuverkanna
- Helvíti
- 2 dagar í París
- Serko
- Síðasti geðsjúklingurinn
- Breytt heimilisfang
- Í köðlunum
- Vonbrigði

Sýningartímar

á Íslensku en Français
Græna ljósið, Alliance Francaise og franska sendiráðið á Íslandi efna til franskrar kvikmyndahátíðar Í Háskólabíói dagana 11. - 24. janúar n.k.

Sýndar verða 11 sérvaldar, fjölbreyttar, splunkunýjar gæðamyndir, brot af því besta sem sýnt hefur verið í Frakklandi undanfarin misseri.

Opnunarmyndin á hátiðinni er Persepolis, teiknimynd fyrir alla aldurshópa, byggð á samnefndum sjálfsævisögum hinnar írönsku Marjane Satrapi, sem hafa náð metsölu um allan heim og unnið til fjölda verðlauna. Meðal annarra athyglisverðra mynda má nefna nýjusta mynd Íslandsvinarins Emir Kusturica, Lofaðu mér, en hún var frumsýnd í nóvember s.l., Serko, magnaða heimildamynd um merkasta afrek allra tíma í reiðmennsku og Molière, stórbrotna og bráðskemmtilega mynd um gamanleikskáldið fræga, Molière.

Peugeot er aðalstyrktaraðili frönsku kvikmyndahátíðarinnar.

Miðaverð fyrir meðlimi AF: 300 kr. gegn framvísun félagsskírteinis