|
Aðalfundur Alliance française í
Reykjavík 2012 verður haldinn þriðjudaginn 29. maí kl. 18:00 í
húsakynnum félagsins í Tryggvagötu 8.
Fundarefni: - Ársskýrsla forseta - Samþykkt
ársreikninga - Breyting á lögum félagsins - Kosning stjórnar
2012-2213 - Önnur mál
Rétt til fundarsetu hafa allir skuldlausir meðlimir Alliance
française.

Frá 26. apríl til 21. júní í Alliance
Française, Ljósmyndasýning "A journey in Iceland - Les
Climats" ("Ferð um Ísland - andrúmsloftið") eftir Lolu
Reboud.
Frá 26. apríl til 21. júní verða ljósmyndir Lolu Reboud sem hún
tók á Íslandi, sýndar í Alliance française:
"Nú orðið hafa allir möguleika á að taka ljósmyndir, en að
ljósmynda land er krefjandi verkefni. Að finna nýjar hliðar, eða í það minnsta
að sýna hið rétta andlit landsins, það gerist ekki hugsunarlaust, án ákveðins
næmis. Lola Reboud valdi sér Ísland sem viðfangsefni. Hún fékk þjálfun í besta
skólanum, þegar hún var aðstoðarmaður ameríska ljósmyndarans Alec Soth, og hefur
mestan áhuga á portrett-myndatökum, í lit og í formi fernings." (Agnès Sire,
framkvæmdastjóri Stofnunar Henri Cartier Bresson)
Lola Reboud: "Frá því í september 2007 hef ég farið til Íslands
í þeim tilgangi að gera heimildamyndaröð um andrúmsloftið, landið og fólkið sem
þar býr. Eins og er samanstendur myndaröðin af um það bil 40 myndum: portrett-,
landslagsmyndum og myndum af daglegu lífi, teknar á öllum tímum ársins og sem
saman mynda eina heild."
 
Sýningin "Les Climats - A journey in Iceland" var sýnd á mörgum
stöðum árið 2010 og var tilnefnd til hinna virtu verðlauna HSBC fyrir
ljósmyndun árið 2011.
"Í heildina minnir myndaröðin helst á eins konar
hreyfingarlausa kvikmynd. Kvikmynd af því að maður finnur fyrir ákveðnum
hugarburði, hreyfingarlaus af því það hreyfist ekkert, nema nakti líkaminn í
vatninu. Fjarlægðin sem skín úr myndunum kemur líklega til af fjarlægðinni sem
stafar frá persónunum þrátt fyrir að þetta séu nærmyndir. Það er aðeins að það
örli á litlu brosi hjá gamla ljósmyndaranum. [...] Andrúmsloftið sýnir fálæti
eldfjallanna og mannanna, eða kraft eyjarinnar og þess ósýnilega sem gefst
aldrei upp" (Agnès Sire).
Opnun sýningarinnar verður þann 26. apríl kl. 17 í
Alliance française, Tryggvagötu 8 að viðstöddum íslenskum listamönnum sem eiga
það sameiginlegt að hafa verið ljósmyndaðir af Lolu: Guðrún Eva Mínervudóttir,
sem hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin 2011, les upp úr verkum sínum; Jarþrúður
Karlsdóttir (Jara) syngur eigin lög, http://www.myspace.com/jaramusic og
Logi Hilmarsson kynnir stuttmynd sína "Þyngdarafl".
2. maí frá kl. 20: Ljósmyndararnir Lola Reboud og Pétur
Thomsen spjalla saman um heimildaljósmyndun og listasögu.
Frekari upplýsingar um störf Lolu Reboud á heimasíðu hennar www.lolareboud.com Allir
velkomnir.
 
Hátíð franskrar
tungu 23-28 mars

Hátíð franskrar tungu er haldin um allan heim , og franska sendiráðið á
Íslandi og Alliance française láta ekki sitt eftir liggja.
1. Föstudaginn 23. mars frá kl. 12, "Franskt auglýsingafár" á
Kex Hostel, Skúlagötu 28 - 101:
Sendiráðið byrjar leikinn á frumlegan hátt þann 23. mars, með því að bjóða
fólki að kynnast fjölbreytileika hins frönskumælandi heims í gegnum
sjónvarpsauglýsingar Franskt auglýsingafár býður upp áeinstakt tækifæri til að
berja augum það besta úr heimi sjónvarpsauglýsinganna, bæði nýlegar og aðrar frá
upphafsárum sjónvarpsins. Úrval fyndinna og skemmtilegra auglýsinga hefur verið
sett saman í tveggja klukkustunda mynd, sem verður sýnd allan daginn.
Viðburðurinn á sér stað á Kex Hostel.
Hvort sem þið dokið við í nokkrar mínútur eða nokkrar klukkustundir,
komið og nótið þessara áhugaverðu "stuttmynda", sem eru textaðar á ensku. Við
ábyrgjumst ánægjulegt ferðalag um hinn frönskumælandi heim.
Til að fá forsmekkinn að auglýsingunum, kíkið á þessa síðu: http://www.nuitdespublivores.com/photos-videos.htm
2. Laugardaginn 24. mars kl. 14, keppnin "Allons en France" í
Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15:

Laugardaginn 24. mars verður frönsk tunga aftur í aðalhlutverki í keppninni
Allons en France, þar sem íslenskir menntaskólanemar keppa um 10 daga ferð til
Frakklands. Keppendur búa til 5 mínútna myndband, byggt á þemanu
"Mannréttindi á 21. öldinni: Nýjar áskoranir?". Sigurvegarinn verður valinn af
þriggja manna dómnefnd, en þeirra á meðal er dagskrárgerðarmaðurinn Egill
Helgason.
Keppnin fer fram á Borgarbókasafninu í Reykjavík 24. mars og hefst kl.
14:00.
3. 26., 27. og 28. mars: "Skrifaðu mér!". Yngstu nemendur
grunnskóla heimsóttir:
Eins og undanfarin ár er Hátíð franskrar tungu tækifæri fyrir Alliance
française til að heimsækja íslenska grunnskóla og vekja áhuga yngstu nemendanna
á franskri tungu.
Þema þessa árs er tengt sýningu sem fer fram á sama tíma í húsakynnum
Alliance française (sjá næsta atriði). 26.-28. mars verður nemendum Melaskóla,
Háteigsskóla og fleiri skóla boðið að taka þátt með því að skrifa stutt bréf á
frönsku, þar sem þau kynna sig, skreyta umslagið og senda til Alliance
française, sem síðan velur fallegasta umslagið. Hverri heimsókn lýkur með því að
Sólveig Simha les stutt ævintýri á frönsku.
4. Frá 28. mars
til 23. apríl: "Saint-Lunaire-Reykjavík: Bréf frá Bretaníu",
sýning á "póstlist" eftir Marie Schimpf í Alliance française, Tryggvagötu
8

Vegna þess að frönsk tunga getur átt sér margar
birtingarmyndir verður "póstlist" sýnd frá 28. mars til 23. apríl í Alliance
française. Sýningin ber heitið "Saint-Lunaire-Reykjavík: Bréf frá Bretaníu".
Sýningin er fyrst og fremst saga af vináttu. Marie Schimpf býr í
Saint-Lunaire á Bretaníuskaga og frá árinu 2008 skrifar hún vinkonu sinni,
Valérie-Anne, sem hefur komið sér fyrir í Reykjavík. Bréfin þeirra eru alls ekki
hversdagsleg. Þvert á móti eru umslögin listalega skreytt og heilla starfsfólkið
á aðalpósthúsinu í Reykjavík. Marie og Valérie-Anne hafa samþykkt að sýna
umslögin í einn mánuð í Alliance française!
Á tímum rafrænna samskipta minnir þessi sýning okkur á þá ánægju sem felst í
því að fá alvöru bréf, skrifuð með bleki á pappír. Til að gera
stemmninguna enn skemmtilegri verður boðið upp á bretónskt hlaðborð við opnun
sýningarinnar miðvikudaginn 28. mars kl. 17-19.
 
"Vesalingarnir" eftir Victor
Hugo
Fimmtudaginn 15. mars, kl. 20.00 Alliance Française,
Tryggvagötu 8. Einn stærsti viðburður leikhúslífsins í
Reykjavík nú í byrjun árs er án efa ný uppfærsla á söngleiknum ?Vesalingarnir?.
Þessi söngleikur eftir Claude-Michel Schönberg (tónlist) og Alain Boublil
(texti) var frumsýndur í Frakklandi árið 1980.

Allt frá upphafi hefur söngleikurinn farið sigurför um heiminn:
60 milljónir manna hafa séð söngleikinn í 43 löndum og yfir 300 borgum!
Alls staðar hefur söngleikurinn slegið öll met, en London á metið í
árafjölda: söngleikurinn hefur verið sýndur þar viðstöðulaust í 27 ár!
Velgengni söngleiksins má samt ekki skyggja á uppruna verksins: hina
stórkostlegu skáldsögu Victor Hugo, en öll 10 bindin voru gefin út í Frakklandi
í fyrsta sinn árið 1862.

Það þekkja orðið flestir Cosette og Gavroche, en hvað með skáldsögu Victors
Hugo?
Þann 15. mars n.k. stendur Alliance Française fyrir kvöldstund um
"Vesalingana": Karl Cogard kynnir skáldsögu Victors Hugo, "Vesalingana" og
Friðrik Erlingsson, þýðandi söngleiksins, fjallar um uppfærsluna og
söngleikinn.
Dagskrá kvöldsins:
20.00-20.30 Karl Cogard: "Ótrúleg örlög einstakrar skáldsögu". 20.30-21.00
Friðrik Erlingsson kynnir söngleikinn.
Í samvinnu við Þjóðleikhúsið.
 
Safnanótt: Rautt og hvítt í svartamyrkri (10. febrúar)

Alliance française tekur þátt í næstu Safnanótt í Reykjavík, sem haldin verður 10. febrúar.
Alliance mun standa fyrir blindri vínsmökkun í tilefni af hátíðinni.
Reynið bragðskyn og lyktarskyn ykkar í myrkrinu með Stéphane Aubergy frá Vínekrunni,
en hann mun á 20 mínútum leyfa ykkur að prófa 4 mismunandi vín...
Geturðu fundið muninn á rauðvíni og hvítvíni? Það er ekki eins auðvelt og maður heldur í fyrstu...
Vinnustofur verða haldnar í Alliance française á Tryggvagötu 8 og vara í um 20 mínútur.
Sú fyrsta hefst kl. 19:30, sú næsta kl. 20:00, og svo koll af kolli fram að þeirri síðastu kl. 22:30.
Athugið að hver vinnustofa rúmar 35 manns.


Alliance Française í Reykjavík, Sendiráð Frakklands á Íslandi
og Græna ljósið kynna franska kvikmyndahátíð, sem verður haldin í 12. sinn
dagana 27. janúar til 9. febrúar í Háskólabíói og í Borgarbíói á Akureyri 17.
til 20. febrúar.
Frönsk kvikmyndahátíð er annar stærsti kvikmyndaviðburður
Íslands, næst á eftir Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Árlega sækja um
10.000 gestir frönsku kvikmyndahátíðina, sem er fyrsti stóri menningarviðburður
ársins í Reykjavík. Það er Alliance française í Reykjavík sem skipuleggur
hátíðina, í samvinnu við Græna ljósið, Institut français og Sendiráð Frakklands
á Íslandi. Eins og verið hefur er fjölbreytnin í fyrirrúmi á Franskri
kvikmyndahátið og það breytist ekki í ár. Sýndar verða ýmsar tegundir
gæðakvikmynda frá Frakklandi, auk mynda frá frönskumælandi svæðum utan
Frakklands, s.s. Québec og Tchad. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á
kvikmyndir eftir kvenleikstjóra.
http://www.af.is/fff2012/cine.asp
  
Föstudaginn 18. nóvember, kl. 12-13. Ljósmyndasafn
Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 6. hæð
"Sýn íslensks ljósmyndara á franskan kollega
sinn: Pétur Thomsen segir frá Marc Riboud".
Þann 3. september s.l. var ljósmyndasýningin "Marc Riboud - ljósmyndir í
50 ár" opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á vegum Alliance Française og
Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Sýningin stendur til 8. janúar 2012.
Í hádeginu föstudaginn 18. nóvember, ætlar Pétur Thomsen að segja gestum frá
sinni sýn á verkum Marc Riboud.
Pétur Thomsen er einn fremsti ljósmyndari okkar í dag. Nýlega sýndi hann verk
sín annars vegar í Listasafni Íslands og hins vegar í Þjóðminjasafni Íslands.
Hann lærði ljósmyndun í Frakklandi, í einum af virtustu ljósmyndaskólum heims:
École Nationale Supérieure de la Photographie (ENSP) í Arles. Ein af mörgum
viðurkenningum sem hann hefur fengið, eru LVMH verðlaun ungra listamanna (Louis
Vuitton Moët Hennessy verðlaunin) árið 2004. Frekari upplýsingar: http://www.peturthomsen.is/
Á íslensku og á
frönsku.
 ©Marc Riboud
Pompidou safnið í París fékk nýlega mjög höfðinglega gjöf frá Marc
Riboud. 40 upprunalegar prentanir eru núna til sýnis í safninu. Sýningin
stendur til aprílloka 2012. http://www.marcriboud.com/
Það er einstakt tækifæri að
fá að sjá ljósmyndir eins fremsta ljósmyndara heimsins í Reykjavík ? ekki láta
þetta tækifæri ganga ykkur úr greipum.
 ©Martin Argyroglo

Fimmtudaginn 27. október, frá kl. 16:00 til 18:00,
Staður: Háskóli Íslands, Háskólatorgi, sal HT 103.
sérstakur fyrirlestur Vincent Debaene um Claude Lévi-Strauss og
Regnskógabeltið raunamædda.
Í tilefni af því að
stórvirkið Regnskógabeltið raunamædda eftir mannfræðinginn Claude Lévi-Strauss
er nú komið út í íslenskri þýðingu Péturs Gunnarssonar býður Alliance française
til landsins Vincent Debaene, en hann er sérfræðingur í verkum Claude
Lévi-Strauss og sá um útgáfu heildarverka hans í hinni virtu La Pléiade ritröð
hjá Gallimard útgáfunni í Frakklandi.

Hér er dagskráin:
Fimmtudaginn 27. október, frá kl. 16:00 til 18:00
1. Torfi H. Tulinius: "Staða C. Lévi-Strauss í hugmyndaheimi
Frakka" 2. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir: "Claude Lévi-Strauss og
mannfræðin" 3. Pétur Gunnarsson, rithöfundur og þýðandi Regnskógabeltisins
raunamædda fjallar um þýðinguna og les kafla úr henni. 4. Fyrirlestur
Vincent Debaene, "Claude Lévi-Strauss og Regnskógabeltið raunamædda",
fyrirlestur á ensku. 5. Umræður
  
Föstudaginn 21., laugardaginn 22., sunnudaginn 23.
október, og föstudaginn 4., laugardaginn 5. og sunnudaginn 6.
nóvember.
"Sex íslendingar fjalla um frönsku uppáhalds
kvikmyndina sína" í Bíó Paradís.
Alliance française bað sex
Íslendinga að fjalla stuttlega um kvikmynd að eigin vali. Frekari
upplýsingar er að finna hér: http://bioparadis.is/2011/10/18/stefnumot-vid-franskar-kvikmyndir-fyrri-hluti/
Allar sýningar eru kl. 20.00
Almennt miðaverð er 1.200 kr Félagsmenn í Alliance Française fá
25% afslátt - sýna þarf gilt félagsskírteini í miðasölu
Hér er dagskráin:
21/10, Kvikmyndaleikstjórinn Kristín Jóhannesdóttir fjallar
um "Les Plages d'Agnès" eftir Agnès Varda.

22/10 Kvikmyndaleikstjórinn Dagur Kári fjallar um "L'Argent"
eftir Robert Bresson.

23/10, Poppspekingurinn Dr Gunni fjallar
um "Le Charme discret de la bourgeoisie" eftir Luis Buñuel.

4/11 Kvikmyndaleikstjórinn Friðrik Þór
Friðriksson fjallar um "Mon Oncle" eftir Jacques Tati.

5/11 Þáttastjórnandinn Sirrý fjallar "Paris"
eftir Cédric Klapisch.

6/11 Teiknimyndahöfundurinn Hugleikur
Dagsson fjallar um "La meute", hryllingsmynd eftir de Franck
Richard.


Mánudaginn 17. október 2011, kl. 15.00-16.30,
Staður:
Háskóli Íslands, Háskólatorgi, sal HT 101.
Hringborðsumræður "Þegar íslenska mætir frönsku - fjórir íslenskir rithöfundar
segja frá áhrifum franskrar tungu og menningar á ritstörf
sín"
Þátttakendur eru Auður Ava
Ólafsdóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir, Pétur Gunnarsson og Sigurður
Pálsson.
Stjórnandi: Torfi H. Tulinius
    
Í tilefni af aldarafmæli sínu, leiðir Alliance Française saman fjóra íslenska
rithöfunda, sem allir tala reiprennandi frönsku, til að hittast og
spjalla. Rithöfundarnir eru tveir karlmenn og tvær konur, á mismunandi
aldri. Þau eru beðin um að velta fyrir sér spurningunni: hafa tengsl
þeirra við franska tungu, listir og menningu (ekki bara bókmenntir, heldur
listir í víðari merkingu) haft áhrif á skrif þeirra á íslensku, og ef svo er,
hvernig kemur frönsk tunga eða frönsk menning inn í skriftirnar og almennt álit
þeirra á íslenskum bókmenntum?
Komdu í Háskóla Íslands, Háskólatorg, sal
HT 101, mánudaginn 17. október frá kl. 15.00 til 16.30, og taktu þátt í
umræðunum.
Umræður fara fram á íslensku.

Sunnudaginn 25. september, Kaffi Rósenberg, Klapparstíg, kl.
21 Mánudaginn 26. september, Bakkus, Tryggvagötu 22, kl. 21 Í anddyri Bíó
Paradís, alla daga til 2. október
Úrval hreyfistuttmynda, "Flickering shapes" og
"Les Petites formes".

Eins og á síðasta ári, tekur Alliance Française þátt í RIFF með því að bjóða
upp á 2 sýningar hreyfisttmynda. Í ár er skammturinn tvöfaldur, með "Flickering
Shapes" og "Les Petites Formes", úrval yfir 30 mynda sem verða sýndar
sunnudaginn 25. September á Kaffi Rósenberg kl. 21 og mánudaginn 26. september á
Bakkus, einnig kl. 21. Þessar sýningar eru sýndar á "Lanterna Magica" hátíðinni
í Marseille í desember á hverju ári, í boði Fotokino.
Sunnudaginn 25. september, kl. 21, Kaffi Rósenberg : "Flickering
Shapes"

Mánudaginn 26. september, kl. 21, Bakkus: "Les Petites formes"

Mánudaginn 19. september kl. 17:00.
Fyrirlestur í minningu Jean-Baptiste Charcot: Jean-Christophe
Victor: Jean-Baptiste Charcot, Paul-Emile Victor og staða
heimskautarannsókna nú á tímum,
Staður: Háskóli Íslands, Askja, stofa 131, (Sturlugötu 7- 101 Reykjavík).
Fyrirlesturinn verður haldinn á frönsku og túlkaður á
íslensku. Í samvinnu við Jörund Svavarsson, prófessor í sjávarlíffræði
við Háskóla Íslands og stjórnarformaður rannsóknaseturs Suðurnesja í Sandgerði.
Aðgangur ókeypis.

Franski leiðangursstjórinn Jean-Baptiste Charcot fórst með allri áhöfn
sinni utan einum manni, alls fjörutíu mönnum, þann 16. september 1936 um borð í
rannsóknaskipinu Pourquoi Pas? Til að minnast þessa atburðar og þess merka
vísindastarfs sem Charcot og menn hans unnu, hafa Alliance Française í Reykjavík
og Háskóli Íslands efnt til svokallaðs Charcot-fyrirlesturs undanfarin þrjú ár
þar sem franskir fræðimenn fjalla um arfleifð Charcots á sviði vísindanna.
Fyrirlesarinn í ár er Jean-Christophe Victor, sem flytur erindi sem nefnist
"Jean-Baptiste Charcot, Paul-Emile Victor og staða heimskautarannsókna nú á
tímum". Jean-Christophe Victor er sonur hins heimsþekkta mannfræðings og
leiðangursstjóra Paul-Emile Victor, en Charcot var nokkurs konar lærifaðir hans
á sínum tíma. Jean-Christophe Victor er með háskólapróf í mannfræði,
hernaðartækni og kínversku. Hann var um skeið menningarfulltrúi Frakklands í
Afghanistan og vann með Greiningar- og spádeild franska utanríkisráðuneytisins
(CAP). Hann er líka hugmyndasmiður og umsjónarmaður sjónvarpsþáttarins ?Hin
hliðin á kortunum?, en það er þáttur um þróun heimsmála sem sýndur er á
fransk-þýsku sjónvarpsstöðinni ARTE. Hann hefur talsvert fengist við kennslu og
fyrirlestrahald í Frakklandi og víða um heim. Auk þess hefur hann skrifað
allmargar bækur um alþjóðasamskipti og er annar stjórnenda LEPAC, Miðstöð
stjórnmálafræða og kortagreininga.

Undanfarin sautján ár hefur Jean-Christophe Victor fjallað um
alþjóðastjórnmál í sjónvarpinu og gert almenningi kleift að átta sig á gangi
mála, hvort sem það er á sviði stjórnmála eða efnahagsmála. Hér er slóð inn á
vef þáttarins:
http://www.arte.tv/fr/Comprendre-le-monde/le-dessous-des-cartes/392,CmC=396,view=maps.html
Þeir sem vilja fræðast frekar um Jean-Christophe Victor er hér slóð þar sem
hann útskýrir hvernig hann fer að:
http://dai.ly/biXprn
Fyrirlesturinn verður sem fyrr segir haldinn mánudaginn 19. september kl
17 :00. Hann verður haldinn á frönsku og túlkaður á íslensku. Jean-Christophe
Victor kemur hingað til lands í tilefni af aldarafmæli Alliance Française
í Reykjavík og Í samvinnu við Jörund Svavarsson, prófessor í
sjávarlíffræði við Háskóla Íslands og formaður stjórnar rannsóknaseturs
Suðurnesja í Sandgerði. Aðgangur er ókeypis.
 
Miðvikudaginn 7. september kl.
17:00, Borgarbókasafnið, Tryggvagata 15
"Ég skrifa á brennheitu
hrauni..." Sýning um ævi og ritverk Irène
Némirovsky
Miðvikudaginn 7. september kl. 17:00 verður sýning um ævi og
ritverk fransk-úkraínsku skáldkonunnar Irène Némirovsky (1903-1942) sem ber
yfirskriftina "Ég skrifa á brennheitu hrauni..." opnuð í Borgarbókasafninu,
Tryggvagötu 15. Sýningin er sett upp í tilefni af því að skáldsagan Frönsk
svíta kemur út sama dag hjá JPV í íslenskri þýðingu Friðriks Rafnssonar. Við
opnunina fjallar sýningarstjórinn, Olivier Philipponat, um sýninguna og að því
loknu opnar dóttir Irène Némirovsky, Denise Epstein, hana formlega.

Irène Némirovsky fæddist í Kiev í Úkraínu árið 1903. Hún
flúði ásamt fjölskyldu sinni frá Rússlandi í rússnesku byltingunni, bjó um skeið
í Finnlandi og flutti síðan til Frakklands þar sem hún bjó og starfaði til
dauðadags, árið 1942. Átján ára að aldri birti Némirovsky fyrstu sögurnar
sínar, gifti sig og eignaðist sitt fyrsta barn í nóvember árið 1929. Mánuði
síðar kom út skáldsagan David Golder, hún sló algerlega í gegn, sagan var
kvikmynduð árið 1930 og þar með var Irène Némirovsky orðinn þekktur höfundur.
Eftir þessa glæsilegu byrjun hélt hún ótrauð áfram, sendi frá sér tíu skáldsögur
og fjölmargar smásögur þar sem hún fjallar um málefni sem hún þekkti vel,
arfleifð fjölskyldunnar, rússneska fortíð sína, það að vera gyðingur, tilraunir
hennar til að vera frönsk og þá erfiðu lífsbaráttu sem hún þurfi að heyja á
síðari hluta fjórða áratugarins þegar gyðingahatur fór vaxandi. Hún snerist til
kaþólsku árið 1939, flúði árið 1940 til í smáþorps í Mið-Frakklandi ásamt
tveimur barnungum dætrum sínum. Þar var hún handtekin árið 1942 og send í
útrýmingarbúðir nasista í Auschwitz þar sem hún lét lífið. Áður en hún var
handtekin tókst henni að ljúka við skáldsöguna Frönsk svíta. Hún var ekki gefin
út fyrr en árið 2004, sextíu og tveimur árum eftir að höfundurinn lést, en hefur
nú verið þýdd á þrjátíu og sjö tungumál, gefin út í fjörutíu löndum og hvarvetna
notið gríðarlegra vinsælda.

Hér er um að ræða smækkaða útgáfu af viðamikilli sýningu sem
sett hefur verið upp í Museum of Jewish Heritage í New York og Mémorial de la
Shoah í París. Sýningin er unnin í samstarfi við dóttur Irène Némirovsky, Denise
Epstein, sem verður einn gesta Bókmenntahátíðar í Reykjavík nú í september, IMEC
(frönsku samtímahandritastofnunina) og Olivier Philipponat, sýningastjóra
sýningarinnar og ævisagnaritara Némirovsky.
Sýningin í Borgarbókasafninu kemur hingað til lands á vegum
Alliance française í Reykjavík og er liður í hátíðarhöldum vegna aldarafmælis
félagsins á árinu. Hún er sett upp í samstarfi við Borgarbókasafn
Reykjavíkur og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO.
Sýningin stendur til 30. september, aðgangur er ókeypis og allt
áhugafólk um bókmenntir og sögu velkomið.
 
Sýningin "Marc Riboud -
ljósmyndir í 50 ár"
Frá 3. september 2011 til 8. janúar 2012 í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, Reykjavík
 Marc Riboud, Unga stúlkan og blómið/ La jeune
fille à la fleur - Washington D.C., 1967
Haustdagskrá Alliance Française í Reykjavík byrjar með
hvelli: það er okkur mikil ánægja að fá tækifæri til að kynna einn
merkasta ljósmyndara samtímans frá Frakklandi, Marc Riboud, og bjóðum ykkur að
sjá sýninguna "Marc Riboud - ljósmyndir í 50 ár", em verður opnuð í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur, laugardaginn 3. september kl. 15.
Sýningin stendur frá 3. september 2011 til 8. janúar 2012
og er einn af afmælisviðburðum í tilefni af aldarafmæli Alliance Française í
Reykjavík.
"Marc Riboud fæddist árið 1923 í Lyon. Hann tók fyrstu
ljósmyndirnar sínar á Heimssýningunni í París 1937, með litlu kassavélinni sem
pabbi hans gaf honum í 14 ára afmælisgjöf. Árið 1953 fékk hann birta ljósmynd
í tímaritinu Life, myndin sýnir málara uppi í Eiffel turninum. Þetta verður til
þess að ljósmyndararnir Henri Cartier-Bresson og Robert Capa með honum við
umboðsskrifstofuna Magnum. 1955 fer hann landleiðina til Indlands, dvelur
þar í eitt ár og fer þaðan í sína fyrstu heimsókn til Kína. Á sjöunda áratugnum
ljósmyndar hann sjálfstæðisbaráttuna í Alsír og Afríku sunnan Sahara.
1968-1969 tekur hann fréttaljósmyndir bæði í suður og norður Víetnam, en hann
var einn fárra ljósmyndara Víetnam stríðsins. Síðan á níunda áratug síðustu
aldar, hefur hann ferðast um heiminn og tekið ljósmyndir, sérstaklega í
Asíu".
Frekari upplýsingar um Marc Riboud:
http://www.marcriboud.com/
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is
  
14. júní kl. 17.30, í Listasafn Íslands "Kona", sýning Louise Bourgeois, skoðuð undir leiðsögn Marie-Laure
Bernadac, deildarstjóra nútímalistadeildar Louvresafnsins.

Ein merkasta listakona Frakka, Louise Bourgeois, hefði fagnað
aldarafmæli á þessu ári. Hún lést á síðasta ári og lét eftir sig verk sem eru
talin með þeim merkustu sem sköpuð voru á 20. öld og í upphafi þeirrar 21.
Listasafn Íslands býður myndlistarunnendum upp á yfirlitssýningu á verkum hennar
frá 27. maí til 11. september. Af þessu tilefni býður Alliance Française til
landsins einum helsta sérfræðingi heimsins í verkum Louise Bourgeois,
Marie-Laure Bernadac, deildarstjóra nútímalistadeildar Louvresafnsins. Hún
verður með leiðsögn um sýninguna, þar sem hún segir sérstaklega frá völdum
verkum á sýningunni. Missið ekki af þessu einstaka tækifæri til að kynnast einum
fremsta listamanni seinni tíma!

Gilt félagsskírteini Alliance Française við inngang safnsins, jafngildir
aðgöngumiða á þessa leiðsögn um sýninguna.
Í samstarfi með Listasafni Íslands.
Skalasafn::
sept 2010 - maí 2011 |
sept 2009 - maí 2010 |
sept 2008 - maí 2009 |
sept 2007 - maí 2008 |
sept 2006 - maí 2007 |
sept 2005 - maí 2006 |
sept 2004 - maí 2005 |
sept 2003 - maí 2004 |
sept 2002 - maí 2003 |
sept 2001 - maí 2002 |
jan - maí 2000 |
okt - des 1999
|