Málþing um Jean-Baptiste
Charcot
málþing í Háskóla Íslands í tilefni af því að 70 ár eru liðin frá því
rannsóknaskipið Pourquoi-Pas? fórst við Ísland.
Fimmtudaginn 14. september frá 14:00 -17:00 í Hátíðasal Háskóla Íslands
Franski heimskautafarinn, leiðangursstjórinn og læknirinn
Jean-Baptiste Charcot (1867–1936) var einn þeirra merkismanna sem fyrstir
könnuðu og kortlögðu haf- og landsvæðin umhverfis heimsskautin í byrjun síðustu
aldar, en meðal annarra þekktra heimskautafara þessa tíma má nefna Amundsen,
Scott, Nordenskjöld og Peary.
Í byrjun 20. aldar stóð Charcot fyrir og stjórnaði tveimur
leiðöngrum til að kanna suðurskautið, og hafði þar vetursetu fyrstur Frakka.
Eftir fyrri heimsstyrjöldina stjórnaði hann síðan fjölmörgum þverfaglegum
vísindaleiðöngrum á norðurslóðir, til Færeyja, Íslands, Jan Mayen og Grænlands.
Þekktasta skip hans var Pourquoi-Pas? – sérútbúið
rannsóknaskip með þremur rannsóknastofum og bókasafni, allra fullkomnasta
rannsóknaskip heims á þessum tíma. Í ferðum þess voru gerðar margvíslegar
vísindarannsóknir sem þykja stórmerkar enn þann dag í dag.
Hinn 16. september 1936 strandaði Pourquoi-Pas? í
aftakaveðri út af Álftanesi á Mýrum í Borgarfirði. Þetta er eitt hörmulegasta
sjóslys Íslandssögunnar, en þar fórust 40 skipverjar og aðeins einn komst lífs
af.
Charcot eignaðist hér fjölmarga vini og hélt góðu sambandi
við þá allt þar til yfir lauk. Þegar minningarsamkoma um hina látnu var haldin í
Kristskirkju, áður en líkin voru flutt til Frakklands, var öllum verslunum í
Reykjavík lokað. Það mun vera einsdæmi í Íslandssögunni að erlendum manni sé
sýndur viðlíka sómi.
Fimmtudaginn 14. september n.k verður haldið málþing í
Háskóla Íslands um Jean-Baptiste Charcot. Leitast verður við að bregða upp mynd
af persónunni Charcot og bakgrunni hans, leiðöngrum hans almennt á suður- og
norðurpólinn, framlag leiðangra hans til vísindanna, arfleifð hans í dag og
tengls hans við Ísland og Íslendinga á sínum tíma. Meðal frummælenda eru
barnabarn Charcots, ævisagnaritari hans og íslenskir fræðimenn. Rektor HÍ flytur
ávarp við upphaf ráðstefnunnar og býður til móttöku að henni lokinni.
Málþingið verður haldið í Hátíðasal HÍ og stendur frá 14:00
til 17:00. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Erindin verða flest á íslensku,
en þau sem verða á frönsku verða túlkuð á íslensku.
Aðrir viðburðir í tilefni af því að 70 ár eru liðin frá því rannsóknaskipið
Pourquoi-Pas? fórst eru þessir:
Dagskrá málþingsins
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Opnunarávarp (10 mín)
Frú Anne-Marie Vallin-Charcot, barnabarn Charcots: Svipmyndir af afa mínum (10
mín)
Mr. Serge Kahn, ævisagnahöfundur: Jean Baptiste Charcot, ævi og starf (20 mín)
Jean-Noël Gard, aðmiráll og forstöðumaður Musée de la Marine í París: Sögulegt
mikilvægi Jean Baptiste Charcot (20 min)
Kaffihlé (20 mín)
Friðrik Rafnsson, verkefnisstjóri: Charcot og Íslendingar (20 mín)
Leó Kristjánsson, prófessor við HÍ: Segulsviðrannsóknir við Ísland í
leiðöngrunum á Pourquoi-Pas? (20 min)
Jörundur Svavarsson, prófessor við HÍ: Tegundir sem uppgötvaðar voru í
leiðöngrum á Pourquoi-Pas? (20 mín)
Odile Brelier, sendiráðsritari og staðgengill sendiherra Frakklands, Franska
sendiráðinu á Íslandi. Frönsk hátíð á Íslandi 2007 - Pourquoi pas? (10 mín)
Málþinginu stjórnar Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í Sandgerði og
stjórnarmaður í stjórn Háskólaseturs Suðurnesja í Sandgerði.
Móttaka í boði rektors Háskóla Íslands.